o - Hausmynd

o

Perlan - Bændahöllin - Helga Möller - Snobbhelgin afstaðin - Óvíst um framhald.......................

BambihreindyrGæs

 

raekja

Ítalskur gölturLundi

 

 

 

 

 

Þessi dýr voru öll étin í Perlunni á laugardagskvöldið, frábærlega vel matreidd. Eftir átið og hóflega drukkið vín var haldið í Bændahöllina til gistingar. Á Mímisbar var enginn nema maður og kona sem sátu í stól (sitt hvorum) og þegar betur var að gáð voru það Hilmar hljómborðsleikari og Helga Möller söngkona. Við fengum okkur drykk á barnum og eftir skamma stund reis Helga á fætur gekk að hljóðnema og hóf að syngja af sinni alkunnu snilld, við undirleik Hilmars. Þau sungu fyrir okkur og nokkra aðra sem slæddist inn, í klukkutíma eða svo.

Frábær endir á góðu kvöldi, takk Helga og Hilmar.

Gæti sosum alveg vanið mig á þetta.

Hver vill koma með næst?

See you.......................


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Ég fer á næstu helgi, með vinnunni í Perluna að borða.

Marta B Helgadóttir, 5.11.2007 kl. 21:43

2 Smámynd: Þröstur Unnar

Þú verður að smakka öll kvikindin Marta, þetta er ljúffengt.

Þröstur Unnar, 5.11.2007 kl. 22:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband