o - Hausmynd

o

Hvern andskotan kemur þetta Fáskrúðsfirðingum við - Átti að selja allt dópið á strætum þorpsins þarna fyrir austn mána og vestan sól...........

"Skúta drekkhlaðin fíkniefnum kemur að landi í litlu sjávarplássi á Íslandi" Þetta eru orð Sjónvarpsins í fréttum í kvöld." Kommon, 10 feta skúta "drekkhlaðin" með einn hveitipoka af dópi.

 

Eftir að Sjónvarpið hafði sagt frá því að smyglarar hefðu verið handteknir á Fáskrúðsfirði með sirka einn hveitipoka af dópi, ætluðu fréttamenn alveg að fríka út af spenningi og réðust að bæjarbúum með spurninguna "hvernig var þér við?.

Einn bæjarbúa svaraði: "Mér varð ekkert við, sá einhverjar löggur og fór bara í vinnu"

Aðrir svöruðu í svipuðum dúr.

Spurning fréttakonu:" Er þetta allt búið núna, geta Fáskrúðsfirðingar nú um frjálst höfuð strokið?

Vissulega frábært framtak hjá löggunni.

En mér finnst nú að fréttafólkið þurfi ekki að míga í sig fyrir það. Fyrr má nú aldeilis fyrrvera.

Police, keep on catching them...................


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

FRÉTTAMENN voru sko með pungsting af spenningi, nema konurnar þær voru bara......  æ þegiðu Ásdís, allavega missti liðið sig doldið.

Ásdís Sigurðardóttir, 20.9.2007 kl. 19:52

2 Smámynd: Kolgrima

Vanir menn á Patró  það kom víst skúta þangað í hitteðfyrra og fór í fyrra...

Kolgrima, 20.9.2007 kl. 21:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband