o - Hausmynd

o

Að lifa lífinu afturábak..........

HPIM3137Í næsta lífi vil ég lifa lífinu afturábak.

Maður byrjar dauður, svo þá er það afstaðið.

Svo vaknar maður á elliheimili og manni líður betur með hverjum deginum. Er síðan sparkað þaðan út þar sem maður er orðin of heilbrigður, fer og nær í ellilífeyrinn og svo þegar maður byrjar að vinna þá fær maður gullúr og partý fyrsta daginn.

Svo vinnur maður í 40 ár eða þangað til maður er nógu ungur til að njóta þess að hætta.

Maður stundar næturlífið, drekkur áfengi og er í raun óútreiknanlegur á allan hátt og þá er maður orðin klár fyrir framhaldsskóla.

Fer svo í grunnskóla, breytist í ungling og leikur sér. Maður hefur engar ábyrgðir og breytist í barn þangað til maður fæðist.

Svo endar maður síðustu níu mánuðina fljótandi um í umhverfi sem einna helst minnir á SPA.

Með þægilegu hitastigi og herbergisþjónustu tengda beint við mann og plássið verður meira og meira með hverjum deginum sem líður og svo ,,,vúúúúúhaaaa þegar maður endar lífið með fullnægingu.

Þarf ég að segja meira?

Þökk þeim sem hlýddu, góðar stundir.........................


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kreppumaður

Tek undir með þér Þröstur, hver vill ekki byrja fyrsta daginn í vinnu á gullúri og búsi?

Kreppumaður, 2.10.2008 kl. 21:27

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Af hverju ertu með mynd af nærbuxunum mínum?

Hrönn Sigurðardóttir, 2.10.2008 kl. 21:52

3 Smámynd: Bullukolla

 ekki amalegt !

Bullukolla, 2.10.2008 kl. 22:05

4 Smámynd: Þröstur Unnar

Varð að losna við hana út í tómið, þær verða líklega ekki sóttar héðan af.

Þröstur Unnar, 2.10.2008 kl. 22:06

5 Smámynd: Ólöf Anna

Mæli með því að þú sjáir leikritið Óvitar hjá LA 

Ólöf Anna , 2.10.2008 kl. 23:57

6 Smámynd: Brynja skordal

 þú ert frábær

Brynja skordal, 3.10.2008 kl. 00:04

7 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Hahahhaha.... skellihlátur hér.   Frábær hugmynd! Enda svo lífið með fullnægingu hahahha... bíddu sumir eru svo heppnir að enda lífið þannig en aðeins útvaldir heheheheheh...... 

Ía Jóhannsdóttir, 3.10.2008 kl. 10:30

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Góður.

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.10.2008 kl. 11:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband