o - Hausmynd

o

Svefndrukkinn söngla ég mig inn í daginn..........

eyeeftir næturbrölt og sjónvarpsgláp fram eftir nóttu. Ekki minn stíll að vaka til þrjú á næturnar, en gat ekki rifið mig frá Bruce Willis bjarga fólki.

Það er indælt að Hvítasunnan er bara einu sinni á ári. Búinn að hvítskúra allt, bæði heima og á vinnustað, éta, hanga, sofa, vaka, færa mig milli stóla, aðstoða fólk í Syper Space, taka myndir, hugsa, hugsa, hugsa, hugsa afturábak, hugsa fram á við, leiðast, dreyma, sakna, gráta, brosa, elska............

Horfði meira að segja á Gospel í sjóvarpinu í gærkvöldi og fékk tár í eitt augað.

Ætli sé til eitthvað við´essu...........

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Kannast við lýsinguna, langar helgar og hátíðisdagar kalla margt  fram. Dagarnir silast áfram, heyrist ekki í neinum; allir uppteknir  og allt of mikið svigrúm til hugsana. Meira að segja fáir á blogginu og maður sjálfur ekki í stuði til að blogga

Eitt gott ráð er að fara á fjöll eða hreinlega erlendis á slíkum tyllidögum, allt frekar en að kúldrast einn heima.  Þetta lagast með tímanum, því get ég lofað þér

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 12.5.2008 kl. 12:22

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Vona að þér líði vel í dag. Á morgun hefst svo rútínan á nú.  Kær kveðja á Skagann. p.s. það er orðið allt of langt síðan við höfum fengið myndir af prinsessunni. 

Ásdís Sigurðardóttir, 12.5.2008 kl. 13:40

3 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Iss bara einn af þessum dögum en gott að þú gast brosað líka.  Á morgun kemur nýr dagur............................

Ía Jóhannsdóttir, 12.5.2008 kl. 17:58

4 Smámynd: Þröstur Unnar

Takk fyrir mig.

Þröstur Unnar, 12.5.2008 kl. 21:07

5 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Þú hefðir átt að koma í kaffi, Elitesse og athugasemdir í dag... það hefði verið gaman. 

Lára Hanna Einarsdóttir, 13.5.2008 kl. 00:20

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hei, bara duglegur.  Voru vitni að þessu þríferíi?

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.5.2008 kl. 09:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband