o - Hausmynd

o

Hjúkkur í stuttum pilsum til að gera fólki lífið léttbærara.....

nurseer það nýjasta á einhverju erlendu sjúkrahúsi, jebb sagt var frá í Rúv fréttum, en missti af hvaða sjúkrahús þetta var, því miður. Upp hoppuðu nokkrir Vinstri Grænir á staðnum og mótmæltu kröftuglega, þá líklega vegna þess að sumar hjúkkurnar voru ekki beint fyrir augað þegar þær beygðu sig niður til að ná í pissuskálarnar.

 

Annars bar helv. góður eftir fertugsammælið og missti ekki hárið þann daginn.

Þakka aftur, ykkur öllum sem bökuðu mér afmæliskveðjur hér á blogginu.

 

 

Þessi færsla er ærslafærsla og aðeins til þess fallin að færa síðustu færslu neðar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Það hlýtur að vera biðlisti eftir plássum á þessum spítölum

Marta B Helgadóttir, 27.3.2008 kl. 20:34

2 identicon

Til hamingju með öll fjörtíu árin og flottu krullurnar!

Verð með kaffi og vöfflur af því tilefni á laugardaginn

Ásta (IP-tala skráð) 27.3.2008 kl. 21:46

3 Smámynd: Þröstur Unnar

Kem Ásta mín.

Veit bara ekki alveg í hvaða átt ég á að fara.

Þröstur Unnar, 27.3.2008 kl. 22:00

4 Smámynd: Linda Lea Bogadóttir

Linda Lea Bogadóttir, 27.3.2008 kl. 23:26

5 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Mér finnst mikilvægasta hlutverk hverrar konu vera það að vera sexí! Allt annað skiptir hreinlega ekki máli.

Guðríður Haraldsdóttir, 28.3.2008 kl. 09:48

6 Smámynd: Brynja skordal

Svona búningar flýta fyrir bata ekki spurning sko fyrir stóru strákana

Brynja skordal, 28.3.2008 kl. 12:43

7 Smámynd: Halla Rut

Frábær hugmynd.

Halla Rut , 28.3.2008 kl. 18:56

8 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ég vil krefjast þess að bílstjórar í jeppaferðum verði ALLTAF berir að ofan og í stuttbuxum undir stýri, líka þegar farið er á jökul.

Svo vil ég sjá starfsmenn á dekkja-, bíla- og skoðunarstöðvum í pungbindum einum fata og vel olíusmurða á kroppinn.

Að lokum finnst mér tilvalið að allir karlkyns þingmenn og ráðherrar klæðist Havaí-skyrtum, hnébuxum, rauðum sportsokkum og með sixpensara á höfðinu, innanhúss sem utan. Á þingfundum verði þeir ávallt með rautt trúðsnef.

Takk fyrir.

Lára Hanna Einarsdóttir, 28.3.2008 kl. 20:55

9 Smámynd: Þröstur Unnar

LH, kröfu fyrstu málsgreinar er auðsótt að uppfylla, en restin er ekki á fárra manna færi.

Þröstur Unnar, 28.3.2008 kl. 21:15

10 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Hvenær á að fara í næstu jeppaferð?

Lára Hanna Einarsdóttir, 28.3.2008 kl. 22:28

11 Smámynd: Ólöf Anna

Vá LH ertu viss hefuru séð alþingiskallana?

Settu boxer í stað pungbinda og ég er sammála.

En já Þröstur. Sælll

Ólöf Anna , 28.3.2008 kl. 22:31

12 Smámynd: Þröstur Unnar

Ekki ákveðið.

Þröstur Unnar, 28.3.2008 kl. 22:32

13 Smámynd: Þröstur Unnar

Sæl Ólöf

Þröstur Unnar, 28.3.2008 kl. 22:34

14 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Alþingismennirnir þurfa ekkert að vera í pungbindum - nema þeir endilega vilji innanklæða. Þeir verða í hnébuxum og tilbehör.

Það er þetta með dekkja-, bíla, og skoðunarmennina... þeir þurfa svo mikið að beygja sig, toga og teygja... Heldurðu að þeim líði ekki vel í pungbindum einum fata í vinnunni? Það þarf kannski að kynda betur hjá þeim.

Þú lætur væntanlega vita af næstu ferð, Þröstur... 

Lára Hanna Einarsdóttir, 28.3.2008 kl. 22:36

15 Smámynd: Þröstur Unnar

Sjúr LH.

Þröstur Unnar, 28.3.2008 kl. 22:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband