o - Hausmynd

o

Til áminningar - Lítil jólasaga...........................

2369944280081954738WEIJDE_fsSíðasta dag fyrir jól flýtti ég mér í stórmarkaðinn til að kaupa

gjafirnar sem ég komst ekki yfir að kaupa fyrr. Þegar ég

sá allt fólkið þar, byrjaði ég að kvarta í hljóði.

„Þetta á eftir að taka heila eilífð og ég á enn eftir að fara á svo marga staði“

Jólin eru alltaf að verða meira og meira pirrandi með hverju árinu. Ég

vildi að ég gæti bara lagst niður og farið að sofa og vaknað svo eftir

jólin. Allavega, kom ég mér í leikfangadeildina og þar fór ég að

skoða verðin, hugsandi hvort að börn leiki sér eitthvað með svona

dýr leikföng. Eftir smá tíma af leikfangaskoði þá tók ég eftir

litlum strák um 5 ára, sem hélt á dúkku upp við brjóstið sitt.

Hann strauk hárið á dúkkunni og virtist svo sorgmæddur. Svo snéri

litli strákurinn sér að eldri konu sem var við hliðina á honum.

„Amma, ertu viss um að ég hafi ekki nógu mikla peninga?“ Gamla konan

svaraði „þú veist að þú átt ekki nóg til að kaupa dúkkuna elskan mín“

Svo bað hún hann um að bíða í 5 mínútur eftir sér á meðan hún

skoðaði sig um. Hún fór fljótlega. Litli strákurinn hélt

ennþá á dúkkunni í hendinni. Ég labbaði til hans og spurði hann

hverjum hann ætlaði að gefa dúkkuna. „Þetta er dúkkan sem systir mín

elskaði mest og langaði svo mikið í fyrir jólin. Hún var svo viss

um að jólasveinninn myndi gefa sér hana. Ég sagði honum að kannski

eigi jólasveinninn eftir að koma með dúkkuna til hennar, og að hann

þyrfti ekki að hafa áhyggjur. En hann sagði við mig sorgmæddur „Nei

jólasveinninn getur ekki gefið henni dúkkuna þar sem hún en núna. Ég

verð að gefa mömmu dúkkuna svo að hún geti gefið henni hana þegar

hún fer þangað“. Augun hans voru svo sorgmædd meðan hann sagði þetta.

„Systir mín er farin til þess að vera með Guði. Pabbi segir að mamma

sé líka að fara til Guðs mjög fljótlega, og ég hélt að hún gæti

farið með dúkkuna fyrir mig og gefið systur minni hana“.

Hjartað mitt stoppaði næstum því. Litli strákurinn leit upp til mín og

sagði. „Ég sagði pabba að segja mömmu að fara ekki alveg strax.

Ég bað hann um að bíða þangað til að ég kæmi heim úr búðinni“. Svo

sýndi hann mér fallega mynd af honum þar sem hann var hlægjandi. „Ég

vil líka að mamma taki þessa mynd með sér svo að hún gleymi mér

aldrei. Ég elska mömmu mína og ég vildi óska að hún þyrfti ekki

að fara, en pabbi segir að hún verði að fara til að vera hjá litlu

systur minni.“ Svo leit hann aftur á dúkkuna með sorgmæddum augum,

mjög hljóðlátur. Ég teygði mig hljóðlega í veskið mitt og tók smá

pening upp og sagði við strákinn. „En ef við athugum aftur í vasann til

að tékka hvort að þú eigir nógan pening? „ Allt í lagi“ sagði

strákurinn „ég vona að ég eigi nóg“ Ég bætti smá af mínum peningum

við án þess að hann tæki eftir því og við byrjuðum að telja. Það var

nógur peningur fyrir dúkkunni, og meira að segja smá afgangur.

Litli strákurinn sagði „Takk Guð fyrir að gefa mér nógan

pening.“ Svo leit hann á mig og sagði. „ Í gær áður en ég fór að sofa

þá bað ég Guð um að vera viss um að ég hafi nógan pening til þess að

geta keypt dúkkuna handa systur minni. Hann heyrði til mín.

Mig langaði líka að eiga nógan pening til að kaupa hvíta rós handa

mömmu, en ég þorði ekki að biðja Guð um of mikið, en hann gaf mér

nóg til að kaupa rósina líka. Sko mamma elskar hvíta rós.“

Nokkrum mínútum seinna kom gamla konan og sótti strákinn. Ég kláraði

að versla með allt öðru hugarfari ég gat ekki hætt að hugsa um litla strákinn.

 

Svo mundi ég eftir frétt í blaðinu tveim dögum fyrr.

Maður keyrði drukkinn og lenti á bíl þar sem ung kona og

lítil stelpa voru í. Litla stelpan dó samstundis en mamman var í

dái. Fjölskyldan varð að ákveða hvort það ætti að setja hana í

öndunarvél eða ekki, af því að unga konan  myndi ekki vakna úr

dáinu.Var þetta fjölskylda litla stráksins? Tveim dögum eftir að ég hitti litla

strákinn, las ég í blaðinu að unga konan

hafi dáið. Ég gat ekki hamið mig og fór út í blómabúð og keypti búnt

af hvítum rósum og fór upp í líkhús þar sem fólk gat séð konuna og

óskað sér í seinasta skipti áður en hún væri jörðuð. Hún

var þarna í kjól, haldandi á fallegri hvítri rós með myndinni af

litla stráknum og dúkkuna á brjóstinu. Ég fór grátandi og

fannst líf mitt hafa breyst til eilífðar. Ástin sem þessi litli strákur

hafði til mömmu sinnar og systur, er enn þann dag í dag, erfitt að

ímynda sér.

Og í einni svipan tekur drukkinn maður þetta allt frá honum.

 

Höfundur óþekktur.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég er með kuldahroll, var búin að gleyma þessari sögu, las hana fyrir mörgum árum, alltaf jafn áhrifarík og þörf.  Takk fyrir að birta hana núna Þröstur minn, í sambandi við bloggvinahittinginn, þá held ég að þú hefðir nú átt að vera þar, fékkstu meil?? allavegana vorum við nokkrar vinkonur þínar svo ýmyndunarveikar að við vorum búnar að gera Þröst úr einum manni þarna og ætluðum að fara að kalla á þig, þegar einhver sagði að þetta væri ekki Þröstur. Allavegana næst, þegar það verður þá mætir þú sko.

Ásdís Sigurðardóttir, 6.1.2008 kl. 21:31

2 Smámynd: Linda Lea Bogadóttir

Já þú með næst...

Linda Lea Bogadóttir, 6.1.2008 kl. 23:04

3 Smámynd: Þröstur Unnar

Æi esskurnar. Voruð þið karlmannslausar?

Var mér einum boðið?

Eða þorði enginn karl að koma?

Who in hell is Ken?

Þröstur Unnar, 7.1.2008 kl. 08:36

4 identicon

Innlitskveðja og með þökk fyrir liðið bloggár

Björg F (IP-tala skráð) 7.1.2008 kl. 10:34

5 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Grenja alltaf jafn mikið yfir þessari sögu.

Já við sáum þig þarna Þröstur minn... nema þetta varst ekki þú.

Þú þarft að koma næst. Þeir voru held ég 4 karlmennirnir sem þorðu.. hehe

Jóna Á. Gísladóttir, 7.1.2008 kl. 22:12

6 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Hmmmmmmmmm

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 7.1.2008 kl. 22:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband