o - Hausmynd

o

E-mail - Mannanöfn - Netdaður - Fúlt veður - 500.000 heimsóknir..............

http://www.freeze.com/Content/Item.aspx?pid=8597

Ég er að fá þetta 20 til 50 e-mail á dag og aðallega erlendis frá. Samt er ég með ruslpóstvörn og opna ekki brot af sendingunum. Er með gamalt póstfang og tími ekki að breyta því. Stundum fæ ég meil frá bloggurum sem eru ekki bloggvinir mínir og fer þeim sendingum fjölgandi. Sum eru skemmtileg og vinaleg, önnur leiðinleg og pirrandi svo einstaka sem innihalda tilboð af ýmsu tagi, t.d eins og "hættu að blogga" - "þú ættir að taka myndina af þér út" - "viltu koma í bíó" - " viltu hitta mig" . Alveg satt. En mér finnst þetta allt í lagi, bara ver só gúd. Þið sem bloggið hljótið að kannast við svona pósta.

Mér finnst nafnið Brynja mjög fallegt nafn, af gefnu tilefni. Einnig Elísabet Lára. Það nafn kom upp þegar verið var að ákveða hvað dóttir mín Eydís Lára átti að heita. Þannig er nú það, jamm.

Hún Jenný er búin að fá hálfa milljón heimsóknir á bloggið sitt sem ég er í raun ekkert undrandi yfir þar sem konan sú er algjör snillingur að skrifa um það sem fólk vill lesa, yfirleitt stuttar, hnitmiðaðar, vel orðaðar færslur. Til hamingju Jennslan mín.

So far so gúd...........


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Aldrei fæ ég svona meil, svona skammar eða daðurs.  Örgla af því ég er svo old.  Fokkit.

Takk fyrir hamingjuóskirnar.  Það er rétt ég er skemmtileg (djók)

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.10.2007 kl. 23:40

2 Smámynd: Þröstur Unnar

Þú ert sko ekki old, woman. Þú hefur húsvernd (band) sem ég hef ekki.

Þröstur Unnar, 1.10.2007 kl. 23:45

3 Smámynd: Þröstur Unnar

Elísabet Láru nafnið kom til greina.

Þröstur Unnar, 1.10.2007 kl. 23:54

4 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

húhúhú.. kannski ég ætti að skella mailinu mínu inn á bloggið... eða kannski ekki

Jóna Á. Gísladóttir, 2.10.2007 kl. 00:19

5 identicon

Ah takk fyrir þetta Þröstur og takk fyrir síðast

Brynja (IP-tala skráð) 2.10.2007 kl. 02:04

6 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Ég fæ aldrei tölvupóst frá svona fólki en það er líklega vegna þess að ég setti ekki netfangið mitt inn á síðuna. Er fólk í alvöru að bjóða þér í bíó? Eru það þá konur?

Kristín M. Jóhannsdóttir, 2.10.2007 kl. 03:54

7 Smámynd: Heiða  Þórðar

kannast við svona mail...einnig hringingar frá vinum; Heiða Bergþóra, núna ertu umþaðbil að fara yfir strikið! I wonder why....;) innlitskveðja á þig Þröstur minn.

Heiða Þórðar, 2.10.2007 kl. 10:36

8 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ég kann ráð við þessu öllu !

Til að losna við ruslpóst, skaltu fá þér svokallað spam... á www.spamaid.com  Hægt að fá 30 daga fría prufu og svo kostar þetta sáralítið.

Til að losna við email, skaltu þykjast vera klikk eins og ég.  Allavega fæ ég engin bréf. 

Anna Einarsdóttir, 2.10.2007 kl. 10:55

9 Smámynd: Kolgrima

Aldrei fæ ég ekki neitt. Ekki síðan ég djöflaðist í Frjálslyndum, þá fékk ég stundum hvatningarbréf en síðan þá, ekkert. Og að nokkur bjóði mér út að borða, er af og frá. Eins og Nico er sæt

Kolgrima, 2.10.2007 kl. 12:01

10 Smámynd: Þröstur Unnar

Ég er með ruslpóstsíu og áður en hún kom þá voru þetta 100-200 meil á dag, erlend.

Mér finnst þetta ellt í lagi í dag, og bara gaman að fá meil frá bloggurum (að mestu leiti). Þið vitið náttúrulega að konur eru miklu harðari í að koma sér á framfæri heldur en karlar, ehaggi?

Þröstur Unnar, 2.10.2007 kl. 13:39

11 Smámynd: Þröstur Unnar

Anna þú hlítur að sjá að ég er klikk

Þröstur Unnar, 2.10.2007 kl. 13:41

12 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hæ Þröstur minn, himnalengjan mætt aftur(þjáist af lengd eins og þú) en þjáist þó ekki. Takk fyrir innlit og kveðjur til mín síðustu viku, hressandi.  Nú fer ég að komast á fullt í bloggheima og hlakka mikið til.  Varst þú nokkuð bitinn???

Ásdís Sigurðardóttir, 2.10.2007 kl. 19:30

13 Smámynd: Þröstur Unnar

Ég er umvafinn kvenfólki,

það get ég svarið,

þar mun verða veislunni margt í

Enn ekki bitinn.

Þröstur Unnar, 2.10.2007 kl. 19:37

14 identicon

Það er nú ekkert nýtt. Greinilega sami sjarmörinn og í Sigtúni í gamla daga . Dansarðu ennþá jafnvel? ... Hvernig var aftur lagið?  .... bara svolítið lengur?

Ásdís H. (IP-tala skráð) 3.10.2007 kl. 21:51

15 Smámynd: Þröstur Unnar

Ásdís, vildi að það hefði verið svolítið lengur.

Takk dúllan mín.

Þröstur Unnar, 3.10.2007 kl. 22:09

16 Smámynd: Þröstur Unnar

*Úps tvær Ásdísar, 17. átti að vera fyrir Ásdísi H.

Ásdís S velkomin aftir í undirheima bloggsins.

Þröstur Unnar, 3.10.2007 kl. 22:11

17 Smámynd: Halla Rut

Þú ert nú svo sætur að ég er ekki hissa á að þær séu að bjóða þér út...

Halla Rut , 3.10.2007 kl. 23:16

18 Smámynd: Þröstur Unnar

Æi takk Halla ,en hef nú ekki þegið neitt útboð enn þá í gegnum bloggið.

Þröstur Unnar, 3.10.2007 kl. 23:30

19 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Auðvitað veit ég að þú ert klikk.... en þótt ég sjái það... er ekki víst að ljóskur taki eftir því.  Þú þarft að vera aðeins meira áberandi klikk

Anna Einarsdóttir, 3.10.2007 kl. 23:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband